Upphafið

Hugmyndin að Prívat Lúxusferðum Íslands er ekki ný af nálinni og hefur verið í mótun frá árinu 2010. Við höfum unnið á lúxusmarkaði á Íslandi frá árinu 2003 og hefur enginn á Íslandi farið í eins margar lúxusferðir um Ísland eins og Private Travel Iceland (PTI ehf.) Upphafið af Prívat Lúxusferðum Íslands má rekja til þess þegar einn af eigendunum fór á stærstu lúxus ferðasýningar í heiminu á borð við Pure Life Experience og ILTM inernational luxury travel market. Þar koma saman bestu fyrirtæki heims í ferðabransanum og var farið þangað til þess að kynna Ísland sem lúxus áfangastað og farið heim með þá hugmynd að kynna Íslendingum fyrir heiminum og öllum þeim lúxus sem er í boði á frábærum kjörum. Í gegnum tíðina höfum við unnið með mörgum af bestu fyrirtækjum heims í þessum geira og erum við því með góð sambönd útum allan heim sem við viljum nýta til þess að bjóða uppá það besta fyrir þig og þínar þarfir.

Við erum með gríðarlega reynslu af prívat & lúxusferðum á Íslandi í gegnum Private Travel Iceland (PTI ehf.) og munum við yfirfæra okkar þekkingu, sambönd og reynslu yfir á Prívat Lúxusferðir Íslands og bjóða Íslendingum uppá lúxusferðir útum allan heim - Hvenær sem er, hvert sem er og er ferðin algjörlega sérsniðin að þínum tíma, þörfum og löngunum. Þú einfaldlega velur áfangastaðinn og við látum hlutina gerast.

Viltu vera með prívat leiðsögumann á prívat bíl og sjá menninguna og náttúrundur með augum þess sem kann söguna á bakvið þessa staði? Fara á þá staði sem heimamenn elska og eru leyndir fyrir hinum almenna túrista? Eða bara njóta þess að vera á frábæru hóteli í góðu veðri? Viltu hvítvín og jarðaber á ströndina klukkan 15.00 á fimmtudegi? Viltu setja upp rómantískan veitingastað í eyðimörkinni eða á einhverjum sérstökum stað? Viltu prívat aðgang að söfnum og vilt ekki bíða í endalausri röð? Viltu miða á besta stað á sérstaka íþróttaviðburði?

Ef einhver áfangastaður sem þú vilt fara til er ekki á heimasíðunni má gjarnan senda okkur línu og við látum draumaferðina þína verða að veruleika. Við munum spara þér tíma og fyrirhöfn við að gera allt sjálf(ur) og verðmunurinn er nánast enginn.

Heimurinn er þinn og okkar er ánægjan að kynna þér fyrir honum.